Fyrstu Norðurljós tímabilsins sáust í gærkvöldi rétt fyrir miðnætti. Þau stoppuðu mjög stutt við í þetta skiptið.
Helstu Norðurljósafræðingarnir búast við töluverðri Norðurljósavirkni þetta tímabilið með marglitu ívafi eins og gerist oft þegar Sólvirknin er í lágmarki 11 ára sveiflu Sólvirkninnar. Búast má við mörgum Kórónugeilum á næstunni en þær senda frá sér aukinn efnivið fyrir ljósasýningarnar. Einnig og er rétt að geta þess að “STEVE” nýjasti meðlimur Norðurljósafjölskyldunnar með sinn fjólubláa blæ sést oftast best í sitthvorum enda tímabilsins.
Ljósmynd: Shanna Dacanay

Shanna Dacanay náði meðfylgjand mynd á símann sinn af ljósasýningunni í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi þann 15. ágúst 2018.